Íslensku barnabókaverðlaunin 2016 voru veitt fyrir bókina Skóladraugurinn eftir Ingu Mekkin Beck.
kapa
Skóladraugurinn er fyrsta bók Ingu. Sagan segir frá fyrsta degi Gunnvarar í nýjum skóla þar sem hún heyrir söguna um skóladrauginn, sögu sem allir nemendur í skólanum hafa heyrt en enginn tekur mark á. En Gunnvör sperrir eyrun. Það kemur sér nefnilega vel fyrir hana ef draugar eru til í alvörunni.
Í umsögn dómnefndar segir að bókin sé í senn spennandi draugasaga og trúverðug lýsing á barni sem misst hafi ástvin.

Inga Mekkin Beck skrifaði stutta nóvellu til lokaverkefnis í BA í Ensku og gaf söguna í kjölfarið út á rafrænu formi. Nóvellan kallast Did You Know? og má nálgast hana á amazon.